BUMBA

18.01.2010 13:02:35 / bumbaxxxzzz

Neeeiiiiiiii ... hvað er ég búin að gera!!

Ohh ég var voða holl í hádeginu fékk mér serrano án pönnukökunar en fékk mér svo lítinn súkkulaðirúsínupoka!
Ég trúi þessu bara ekki,ég er svo sár út í sjálfan mig að hafa ekki getað staðist freistinguna.

Ég ætla að reyna að velta mér ekki meira upp úr því og mæta í staðin í ræktina í kvöld og taka smá brennslu svo að þetta komi á núlli.

Þetta voru mistök dagnsins í dag!!!! :cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry:

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2010 08:14:27 / bumbaxxxzzz

Dagur númer 5

Það er langt síðan ég skrifaði síðast en helgin gekk mjög vel! Ekkert nammi borðað frá því að átakið byrjaði...vúhú!!

Ég er búin að vera dugleg að mæta í ræktina og synda. Ég fór meira að segja í sund fyrir vinnu :) Synti nú samt bara 16 ferðir en það er betra en ekkert.

Á laugardaginn leyfði ég mér gott kjöt og kartöflur með kryddsmjöri, fékk mér enga sósu.

Ég er farin að hlakka til miðuvikudagsins en kvíði samt líka fyrir þar sem ég verð ótrúlega sár ef ég sé ekki einhvern árangur.

Jæja skrifa kannski meira á eftir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2010 14:36:50 / bumbaxxxzzz

Ég óska hér með eftir hollum og góðum uppskriftum

Er ekki einhver sem lumar á góðum uppskriftum? Helst kjúklingauppskriftum?


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2010 10:42:11 / bumbaxxxzzz

Fyrstu vigtun lokið!

Ég var aðeins þyngri en ég hélt ég væri :^)
Ég er sem sagt orðin 80.8 kíló!!!
Fituprósentan mín var 44.6 (minnir mig) Þannig að líkami minn er næstum því helmingur FITA. Viðbjóður!!

Nú er keppnin byrjuð!

Ég fór í sund í morgun :p Ógeðslega dugleg! Ég syndi nú bara samt 20 ferðir (rúmmlega 15 mín) Ég ætla svo í ræktina í kvöld.

Ég ætla að hætta alveg í gosinu. Mér finnst þessi mynd gefa manni ansi góða ástæðu til að hætta gosdrykku.



Matseðill dagsins í dag er eftirfarandi:

Morgunmatur: Hafragrautur með banana
Miðmorgunmatur: 2 flatkökur með papriku
Hádegismatur: serrano án pönnukökunnar (grænmeti, grjón, gular baunir, kjúklingur)
Kaffitími: 4-5 finn crisp með banana
Kvöldmatur: Kjúklingur (veit ekki hvernig ég á að matreiða hann)
Kvöldkaffi: Ekkert

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2010 09:12:44 / bumbaxxxzzz

13.01.2010

Smá klúður í gær.

Fékk mér 2 kókglös með kvöldmatnum og svolítið af dorritos með kjúllanum  :^)

En..... ég get huggað mig við það að átakið byrjar í raun ekki fyrr en á morgun :) Fyrsta vigtun er á eftir og eftir það VERÐ ég að fara að missa kílóin!


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2010 13:49:16 / bumbaxxxzzz

12.01.2010

Ohhh ég hlakka svo til að fara í fyrstu vigtunina á morgun, get bara ekki beðið!
Ég er búin að vera mjög dugleg í dag:
Morgunmatur: létt ab mjólk og múslí
Miðmorgunverður:  2 brauðsneiðar með osti
Hádegismatur: serrano án pönnukökunnar
Í kaffitímanum ætla ég að fá mér skyr með bláberjabragði
og svo ætla ég að hafa kjúkling í kvöld.

Ég hef oft farið í átak en ég held að ég hafi aldrei verið jafn tilbúin eins og ég er núna.


Takk fyrir öll kommentin, ótrúlega sæt og hjálpa manni að sigrast á fitupúkanum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.01.2010 12:11:17 / bumbaxxxzzz

Breyttur lífsstíll

Þá er komið að því. Átak númer 398 og nú skal það takast!!

Ég er 29 ára, kvk, 166 sm og 80 kíló. Draumatalan er 63.

Ég er búin að skrá mig á námskeið þar sem ég mæti vikulega og læt vigta mig. Ef ég þyngist þarf ég að borga 100 krónur fyrir hver 100 grömm. Námskeiðið er 12 vikur og í verðlaun fyrir fyrsta sætið er penningapottur. Átakið byrjar á miðvikudaginn.

Ég ÆTLA að breyta um lífsstíl. Ég borða eins og flóðhestur, ég gæti sleppt því að borða mat og étið endalaust af sælgæti. Þegar ég fer út í sjoppu þá læt ég mér ekki nægja að kaupa eitt súkkulaði heldur kaupi ég allavega tvö og í fjölskyldustærð. Ég get borðað nammi um leið og ég vakna, langar sem sagt alltaf í nammi. Það eru til fullt af nammi heima en ég bað manninn minn að fara með það niður í geymslu og fela það, sem og hann gerði.

Ég ÆTLA að hafa nammidag einu sinni í viku og leyfa mér þá nammi, gos og eitthvað gott að borða. Ég er alveg viss um það að ef ég hef ekki nammidag þá á ég eftir að springa.

Ég ÆTLA að hreyfa mig þrisvar sinnum í viku (oftar ef ég nenni, en lágmark þrisvar sinnum). Ég er búin að kaupa mér kort í líkamsræktarstöð og eins ætla ég að synda.

Það er kannski óraunhæft en ég ÆTLA mér að missa 10 kíló á þessum 12 vikum.

Og að lokum ég ÆTLA að vinna penningapottinn.


Ég vona að það nenni einhver að lesa þetta blog og peppa mig áfram <img src=" src="http://s.wordpress.com/wp-includes/images/smilies/icon_smile.gif" />

bumbaxxxzzz


» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 2362
Dagsetning
28. janúar 2012
Gamalt blogg
Átaksbloggarar
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 668 dögum
Keppni lýkur